141. löggjafarþing — 112. fundur,  27. mars 2013.

stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.

618. mál
[22:14]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Landspítali – háskólasjúkrahús er móðurskip íslenska heilbrigðiskerfisins. Með þessu frumvarpi færumst við nær markmiðinu um nýjan Landspítala sem mun auka öryggi sjúklinga, bæta starfsumhverfi og auka rekstrarhagræði. Með samþykki þessa frumvarps hæstv. fjármálaráðherra Katrínar Júlíusdóttur styrkjum við stoðir hins opinbera heilbrigðiskerfis.

Frú forseti. Sem jafnaðarmaður er ég stolt að geta sagt já við frumvarpi sem þessu.