141. löggjafarþing — 113. fundur,  28. mars 2013.

nýjar samgöngustofnanir.

696. mál
[01:22]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla að greiða atkvæði með þessu en ég verð að segja eins og er að heldur þykir mér þetta nafn rislítið. Hér var til dæmis í sjómannalögum nafnið Siglingastofnun Íslands og það breytist nú í Samgöngustofa. Mér finnst þetta frekar lélegt nafn, ég verð að segja það eins og er. [Hlátur í þingsal.]