141. löggjafarþing — 113. fundur,  28. mars 2013.

nýjar samgöngustofnanir.

696. mál
[01:23]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Frú forseti. Við greiðum atkvæði um bandormsmál sem er vegna nýrrar Samgöngustofu. [Hlátur í þingsal.] Það nafn er komið til úr atkvæðagreiðslu innan þeirra stofnana sem hlut eiga að máli. Þetta er það nafn sem starfsmenn stofnananna völdu og því styð ég málið af heilum hug.