142. löggjafarþing — 1. fundur,  6. júní 2013.

kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa.

[16:25]
Horfa

Aldursforseti (Einar K. Guðfinnsson):

Nú fer fram kosning forseta Alþingis. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. þingskapa eru þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru. Mér hefur borist tilnefning um 2. þm. Norðvest., Einar K. Guðfinnsson. Þá hefur borist önnur tilnefning um Ragnheiði Ríkharðsdóttur. Eru hreyfð andmæli við því? (RR: Ég er ekki í kjöri.)

Borist hafa andmæli við tilnefningu um Ragnheiði Ríkharðsdóttur og er hún því ekki í kjöri til forseta Alþingis samanber 1. mgr. 3. gr. þingskapa.

Aðrar tilnefningar hafa ekki borist. Einar K. Guðfinnsson er því einn í kjöri. Þar sem aðeins er einn í kjöri er það ætlun forseta að láta kosninguna fara fram með atkvæðagreiðslukerfinu. Ef ekki eru athugasemdir við þennan hátt á kosningunni fer atkvæðagreiðslan fram með eftirfarandi hætti: Kerfið er þannig stillt að jafna má við leynilega kosningu. Töflurnar á veggjum munu aðeins sýna hverjir hafa neytt atkvæðisréttar síns en ekki hvernig þeir greiddu atkvæði og sama gildir um geymsluminni tölvunnar.

Þeir sem kjósa Einar K. Guðfinnsson ýti á já-hnappinn en þeir sem skila vilja auðu ýti á hnappinn sem merktur er: greiðir ekki atkvæði. Gult ljós kviknar við miðhnappinn þegar atkvæði hefur verið greitt, sama á hvorn hnappinn er ýtt, og eins kviknar aðeins gult ljós á veggtöflunni.