142. löggjafarþing — 1. fundur,  6. júní 2013.

hlutað um sæti þingmanna.

[16:48]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Nú verður hlutað um sæti annarra þingmanna. Sætahlutun fer þannig fram að þingmenn verða kvaddir að forsetaborði með nafnakalli og draga sér sæti. Formenn þingflokka draga um sæti fyrir fjarstadda þingmenn. Hlutað verður um hver dregur fyrstur.