142. löggjafarþing — 6. fundur,  14. júní 2013.

veiðigjald.

15. mál
[14:00]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Í ljósi svara hv. þingmanns hygg ég að það sé rétt og skylt fyrir mig sem nefndarmann í atvinnuveganefnd hins háa Alþingis að gaumgæfa það atriði sérstaklega hvernig Norðmenn reikna auðlindarentu í sjávarútvegi til þess að við getum haft það okkur til upplýsingar, fróðleiks og hliðsjónar. Ég hygg því að ég muni beita mér fyrir því á vettvangi hv. nefndar.