142. löggjafarþing — 7. fundur,  18. júní 2013.

varamaður tekur þingsæti.

[13:39]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins um að 7. þm. Reykv. s., Guðlaugur Þór Þórðarson, geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Sigríður Á. Andersen. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa.