142. löggjafarþing — 9. fundur,  20. júní 2013.

Seðlabanki Íslands.

20. mál
[11:48]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Helga Hjörvar fyrir ræðuna og sérstaklega niðurlagið. Það er rétt hjá honum að á síðasta þingi, sérstaklega á síðasta ári, var mikil samstaða meðal þingmanna um að leysa vandamálið sem kallað hefur verið snjóhengja, miklu meiri samstaða en kom fram. Hv. þingmaður á góðan þátt í því að vera með stjórnarandstöðunni á þeim tíma, sem ég var hluti af, í því að vinna saman að því að leysa þetta mikla vandamál þjóðarinnar. Ég vil þakka honum fyrir það hér og nú. Þetta er sem sagt ekki andsvar heldur eiginlega meðsvar.