142. löggjafarþing — 12. fundur,  25. júní 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

11. mál
[15:31]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg rétt, það væri náttúrlega hreinlegra og ég er alveg tilbúinn í umræðu um það og sé því ekkert til vansa. Það tengist þó ekki alveg markmiðum með því sem við erum að breyta núna. En ef við viljum ræða það samhliða þessu máli er ég alveg til í það.