njósnir Bandaríkjamanna í Evrópu.
Virðulegi forseti. Ég er ekki búinn að lesa leiðara Morgunblaðsins í dag en heyri á hv. þingmanni að hann hafi verið áhugaverður.
Ég vil segja við hv. þingmann að við munum að sjálfsögðu fylgjast mjög grannt með framvindu þessa máls. Ég hef trú á því að þetta geti undið upp á sig að því leyti til að það munu eðlilega vakna spurningar hjá fleiri ríkjum en bara hjá Evrópusambandinu, t.d. Bretlandi, Bandaríkjamenn og fleirum. Við þurfum að fylgjast náið með því. Ef ástæða er til að krefjast einhverra frekari upplýsinga eða svara hjá bandarískum stjórnvöldum eða öðrum stjórnvöldum sem eru grunuð um eitthvað slíkt þá munum við að sjálfsögðu fylgja því eftir og gera það.
Ég ætla ekki að segja til um að svona uppákoma þurfi að hafa alvarlegar afleiðingar á samskipti ríkja. Það er nú einu sinni þannig að samskipti ríkja, hvort sem það eru Bandaríkin eða aðrir, eiga sér stað á margvíslegum nótum. Það eru alls konar mál í gangi en ég ætla ekki að standa hér og segja að þetta komi til með að hafa einhverjar alvarlegar afleiðingar. Það er hins vegar mjög slæmt ef við teljum að vinir okkar séu að hlera eða njósna um okkur, þá er það aldrei þægilegt.