142. löggjafarþing — 20. fundur,  3. júlí 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

11. mál
[16:49]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Ég þaulsat þessa umræðu í þeim tilgangi að hlusta á öll góð mótrök sem voru mörg hver mjög góð, rök hv. þingmanna stjórnarandstöðunnar. Ég mat kosti og galla og ég er þess fullviss að þessu sé best til haga haldið að Alþingi geri tillögu um skipan stjórnar RÚV. Ég tel kosti þess ótvíræða og afgerandi og þess vegna segi ég já.