142. löggjafarþing — 20. fundur,  3. júlí 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

11. mál
[16:52]
Horfa

Haraldur Einarsson (F):

Hæstv. forseti. Við erum ekki öll sammála enda greinir okkur hér á um sjónarmið. Eftir að hafa hlustað á marga ræður síðustu daga um málefni RÚV er það sannfæring mín að hagsmunir þessarar stofnunar og almennings þar af leiðandi sé betur tryggt með aðkomu Alþingis. Þess vegna ætla ég að styðja frumvarpið.