142. löggjafarþing — 24. fundur,  5. júlí 2013.

þingfrestun.

[02:01]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 142. löggjafarþings, frá 4. júlí 2013 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 10. september 2013.

Gjört á Bessastöðum, 4. júlí 2013.

Ólafur Ragnar Grímsson.

__________________________

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

 

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég yfir því að fundum Alþingis, 142. löggjafarþings, er frestað.

Ég þakka háttvirtum alþingismönnum og starfsmönnum þingsins fyrir samstarfið á umliðnu sumarþingi og óska þeim og landsmönnum öllum gleðilegs sumars.