störf þingsins.
Virðulegi forseti. Mig langar að gera hlutverk Fjarskiptasjóðs og túlkun á hlutverki hans að umtalsefni. Síðastliðinn föstudag var meðal annars fjallað um lélegt netsamband á Borgarfirði eystra í Kastljósi þar sem skýrt kom fram að skortur á góðri nettengingu hamlar samfélagsþróun þar sem það dregur úr möguleikum fólks sem hefur áhuga á að búa þar til að stunda þá vinnu sem hugur þess stendur til. Fyrir utan að það dregur úr möguleikum til náms og ýmissar annarrar þátttöku í samfélaginu, þátttöku sem meiri hluti íbúa landsins telur sjálfsagða. Borgarfjörður eystri er því miður ekkert einsdæmi því að víða um land er netsamband lélegt.
Eitt af hlutverkum Fjarskiptasjóðs sem heyrir undir innanríkisráðuneytið er að styrkja verkefni sem miða að því að efla fjarskipti í landinu. Í fréttum ríkissjónvarpsins þann 14. september kom fram að sjóðnum væri óheimilt að efla netsambandið á Borgarfirði eystra. Sjóðnum sé einungis heimilt að aðstoða þar sem markaðsbrestur er. Markaðsbrestur. Hvað er það? Gæti hugsast að verið sé að túlka hugtakið markaðsbrestur á annan veg en upphaflega var ætlun löggjafans? Spyr sú sem ekki veit.
Fjarskiptasjóður má eingöngu stuðla að öflugra netsambandi á landsvæðum þar sem markaðsbrestur hefur orðið. Getur verið að það þýði að ef boðið er upp á netsamband, hvort sem það stendur undir nafni eða ekki, geti sjóðurinn ekkert gert? Var það virkilega ætlunin?
Samkvæmt lögum er hlutverk sjóðsins að úthluta fjármagni til verkefna sem miða að uppbyggingu stofnkerfa fjarskipta. Verkefna sem stuðla að öryggi og samkeppnishæfni þjóðfélagsins á sviði fjarskipta og annarra verkefna enda sé kveðið á um þau í fjarskiptaáætlun og ætla má að ekki verði í þau ráðist á markaðsforsendum.
Ég auglýsi eftir lausnamiðaðri umræðu um þessi mál. Er hægt að fara í uppbyggingu innan núverandi lagaramma eða þarf breytingar? Við þurfum lausnir sem byggja á raunveruleikanum. Þetta snýst um jafnrétti (Forseti hringir.) og að við höfum ekki efni á því að útiloka suma íbúa landsins frá möguleikum til þátttöku.