142. löggjafarþing — 30. fundur,  18. sept. 2013.

þingfrestun.

[16:47]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Forseti Íslands gjörir kunnugt:

„Ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 142. löggjafarþings, frá 18. september 2013 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 1. október 2013.

Gjört á Bessastöðum, 16. september 2013.

Ólafur Ragnar Grímsson.

___________________________

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

 

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis 142. löggjafarþings er frestað.

Ég óska alþingismönnum, starfsmönnum þingsins og landsmönnum öllum allra heilla.