143. löggjafarþing — 1. fundur,  1. okt. 2013.

mannabreytingar í alþjóðanefndum.

[16:02]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseta hefur borist eftirfarandi tilkynning frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins um mannabreytingar í nefndum þingsins, samanber 16. gr. þingskapa:

Brynjar Níelsson hættir sem aðalmaður í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins og verður í stað þess varamaður en Unnur Brá Konráðsdóttir, sem var varamaður, verður aðalmaður.

Þessar breytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.

Forseta hefur einnig borist tilkynning frá þingflokki Samfylkingarinnar um mannabreytingar í nefndum þingsins, samanber 16. gr. þingskapa.

Guðbjartur Hannesson hættir sem varamaður í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins en í stað hans verður Oddný G. Harðardóttir varamaður.

Þessar breytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.