143. löggjafarþing — 3. fundur,  3. okt. 2013.

varamaður tekur þingsæti.

[10:33]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Samfylkingarinnar, Helga Hjörvar, um að Katrín Júlíusdóttir geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Samfylkingar í kjördæminu, Margrét Gauja Magnúsdóttir. Kjörbréf Margrétar Gauju hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Margrét Gauja Magnúsdóttir, 11. þm. Suðvest., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]