143. löggjafarþing — 10. fundur, 16. okt. 2013.
þjóðfáni Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið.
13. mál
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Eftir því sem ég best veit þá fellur málefni þjóðfána Íslendinga beint undir forsætisráðuneytið. Því er þetta sett fram í þessu frumvarpi eins og gert var í fyrri frumvörpum.