143. löggjafarþing — 14. fundur,  1. nóv. 2013.

bætt ímynd Alþingis á samfélagsmiðlum.

119. mál
[11:55]
Horfa

Flm. (Björt Ólafsdóttir) (Bf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um aukinn sýnileika og bætta ímynd Alþingis á samfélagsmiðlum með það að leiðarljósi að auka upplýsingaflæði til borgaranna og bæta ímynd Alþingis. Allur þingflokkur Bjartrar framtíðar stendur að þessari tillögu.

Mikið hefur verið rætt um ásýnd og virðingu Alþingis á undanförnum missirum og hefur traust landsmanna til stofnunarinnar aldrei mælst minna. Það er reyndar ánægjulegt að greina frá því að síðan þessi greinargerð var skrifuð hefur traustið aðeins aukist samkvæmt nýjustu könnun. Vonandi er það vísbending um að fólk sé ánægt með að við tölum hérna saman af virðingu og á góðum nótum.

Það er mikilvægt að Alþingi hafi rödd og sé sýnilegt þar sem fólkið í landinu er á hverjum tíma. Þýðingarmikið er að stofnun eins og Alþingi leggi áherslu á að vera lifandi, lagi sig að breyttum aðstæðum og sé hluti af samfélaginu. Markmið þessarar þingsályktunartillögu er að auka sýnileika Alþingis út á við, bæta upplýsingaflæði til borgaranna og stuðla þannig að bættri ímynd þingsins.

Íslendingar eru í hópi netvæddustu þjóða heims og eru um 95% landsmanna tengd netinu á einn eða annan hátt, auk þess hafa Íslendingar verið þjóða iðnastir við að nýta sér samfélagsmiðla. Samfélagsmiðlar eru samheiti yfir netmiðla sem eiga það sameiginlegt að byggja fyrst og fremst á gagnvirkum samskiptum þeirra sem nota miðilinn. Þessir miðlar eru löngu orðnir viðurkenndir staðir til að koma upplýsingum á framfæri og stöðugt fleiri notendur samfélagsmiðla sækja fréttir, afþreyingu og samskipti hvers konar þangað.

Upp spretta kynslóðir sem lesa ekki dagblöð, tímarit, netfréttamiðla eða horfa á sjónvarpsfréttir. Þessir einstaklingar nota nýjar leiðir, þeir lifa og hrærast á samfélagsmiðlum og nota sinn miðil til að sækja prentmiðlana, þá á rafrænu formi, en fólk velur þá hvað það vill sjá.

Samskiptamiðlar opna leið til þess að koma á beinum samskiptum við borgarana og eiga við þá ákveðið samtal. Það er mikilvægt að hlusta og aukið aðgengi almennings að Alþingi sem stofnun er til þess fallið að auka traust. Það er margt sem mælir með því að Alþingi skoði möguleika á að nota samfélagsmiðla til samskipta og upplýsingamiðlunar. Með notkun samfélagsmiðla er hægt að stuðla að jákvæðri ímynd. Til dæmis væri hægt að vísa til umfjöllunar og frétta annarra miðla um Alþingi, en vissulega yrði að gæta hlutleysis við val á slíku fréttaefni líkt og gert er við val á efni sem birtist á heimasíðu Alþingis í dag. Á samfélagsmiðlum er hins vegar hægt að koma upplýsingum á framfæri hratt og milliliðalaust. Heimasíða Alþingis er hafsjór fróðleiks og þar er mikið magn af upplýsingum sem hægt væri að koma til almennings með aðgengilegum hætti. Samfélagsmiðlarnir gætu verið góð leið til þess að leiða notendur á vefinn og vísa á þær upplýsingar sem þar má nálgast. Auðveldlega er hægt að koma á framfæri almennum fréttum frá starfinu samhliða birtingu á heimasíðu. Slíkir miðlar eru kjörinn vettvangur til þess að miðla myndum af því fjölbreytta starfi sem fram fer á vegum þingsins. Einnig er ljóst að samfélagsmiðlar eru hentugur staður til þess að vekja athygli á tilvist ýmissa gagna sem eru á vef Alþingis. Þar eru t.d. ræður, ferill þingmála, þingskjöl, fundargerðir nefnda, nefndarálit og svo mætti lengi telja.

Tillagan gerir ráð fyrir að mótuð verði sérstök stefna fyrir Alþingi um notkun samfélagsmiðla. Í stefnunni verður útlistað hvernig Alþingi getur best nýtt sér slíka miðla til þess að hrinda framangreindum markmiðum í framkvæmd. Einnig þyrfti að gera drög að leiðbeiningarreglum um hvernig starfsfólki ber að umgangast miðilinn og hvernig best væri að hrinda verkefninu í framkvæmd eins fljótt og skilvirkt og kostur er.

Athygli er vakin á því að Stjórnarráðið hefur þegar lagst í slíka vinnu og skilaði vinnuhópur um samfélagsmiðla og upplýsingastefnu Stjórnarráðsins skýrslu í maí 2012. Nokkur ráðuneyti eru nú þegar orðin sýnileg á samfélagsmiðlum. Önnur dæmi þar sem notkun samfélagsmiðla hefur bætt ímynd og ásýnd opinberra stofnana er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sem hefur haldið úti Facebook-síðu með góðum árangri. Annað dæmi er dagbók borgarstjóra þar sem 35 þúsund manns fylgjast beint með daglegum verkum hans. Þessu hefur verið gríðarlega vel tekið. Aukið aðgengi hins almenna borgara að borgarstjóra hefur opnað alla umræðu. Enda þótt sú síða sé rekin af meðlimum stjórnmálaflokks sýnir hún glögglega hvernig samfélagsmiðlar geta virkað til þess að brúa bilið milli kjörinna fulltrúa og íbúa.

Hlutverk Alþingis á samfélagsmiðlum væri einna helst að gefa almennum borgurum innsýn í þau verk sem unnin eru á Alþingi með hlutlausum hætti, veita upplýsingar og umfram allt brúa bilið á milli þings og þjóðar.

Lögð er áhersla á að vinna við stefnu Alþingis um notkun samfélagsmiðla verði hafin sem fyrst og síðan birt fullbúin á vef Alþingis.