143. löggjafarþing — 14. fundur,  1. nóv. 2013.

bætt ímynd Alþingis á samfélagsmiðlum.

119. mál
[12:08]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég fagna þeirri þingsályktunartillögu sem hér er komin fram. Ég held að við séum á réttri leið að bæta ímynd þingsins. Þetta er örugglega vandmeðfarið, hvernig við nýtum okkur þessa miðla, en ég treysti fólki hér innan dyra fullkomlega til að fara rétt og vel með þannig að við getum komið málefnum þingsins frá okkur á skilmerkilegan og aðgengilegan hátt.

Ég vona að við náum að vinna þetta áfram.