143. löggjafarþing — 18. fundur,  7. nóv. 2013.

fækkun sjúkrabifreiða.

[11:05]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S):

Herra forseti. Ég vil bara bregðast við með því að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir það svar og ítreka mikilvægi þess að við endurskoðum þessa ákvörðun eins og hann rakti hér, hvernig hún er til komin. Ég minni á að í þessu máli endurspeglast, eins og hæstv. heilbrigðisráðherra sagði, öryggistilfinning fólks og sú tilfinning sem það hefur fyrir því að sameining í heilbrigðisþjónustu og breytingar á niðurskurði, að þarna sé ákveðinn skurðarpunktur í því að fólk upplifi sig ekki óöruggt. Því fagna ég sérstaklega svari ráðherrans.