143. löggjafarþing — 26. fundur,  20. nóv. 2013.

náttúruvernd.

167. mál
[18:00]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta var eins og hv. þm. Birgi Ármannssyni er líkt, ákaflega skýrt og greinargott. Ég held að það marki nokkuð völlinn í málinu og dragi fram þær ólíku áherslur sem þar eru sem eru í sjálfu sér allt of viðamikil efnisatriði til þess að fara frekar út í í einnar mínútu stuttu andsvari. Ég kýs að inna hv. þingmann bara eftir því hvaða athugasemdir kajakræðararnir höfðu.