143. löggjafarþing — 29. fundur,  29. nóv. 2013.

fjármagn til skuldaleiðréttinga.

[10:37]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Nú styttist í að hv. þingmaður geti hætt getgátum sínum vegna þess að von er á kynningu á tillögum sérstaks sérfræðingahóps um leiðréttingu á verðtryggðum skuldum heimilanna. Hv. þingmaður mun ekki þurfa að bíða lengi eftir svörum. Mér þykir leitt að heyra að hv. þingmaður skuli ekki hafa skilið svar mitt áðan. En hvað varðar eftirfylgnina, þau atriði sem hv. þingmaður nefndi í seinni spurningu sinni, þá þarf hann ekki að bíða lengi eftir svörum við því.