143. löggjafarþing — 32. fundur,  4. des. 2013.

sjúkraskrár.

24. mál
[16:22]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Meiri hlutinn treystir sér ekki til að styðja þessa breytingartillögu. Sjúklingar eiga samkvæmt lögum rétt á aðgengi að eigin sjúkraskrá, en við viljum ekki breyta lögunum og afnema þann neyðarventil sem til staðar er ef þær aðstæður koma upp að aðgengi ógni hagsmunum sjúklings að mati fagaðila. Heimildin er mjög þröng og ber ekki að nýta nema í ýtrustu neyð.