143. löggjafarþing — 33. fundur,  10. des. 2013.

kæruferli fyrndra kynferðisbrota.

[14:26]
Horfa

innanríkisráðherra (Hanna Birna Kristjánsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á málinu sem kom eins og hún nefnir í fjölmiðlum í gær. Við munum óska eftir upplýsingum um það sem þar kom fram og fara yfir það og er ekkert nema ánægja að upplýsa þingið um það þegar það liggur fyrir.

Ég hef ekki frekari upplýsingar nákvæmlega um málið enda sá ég það líkt og hv. þingmaður í fjölmiðlum í gær og í dag, en við munum óska eftir upplýsingum frá lögreglu og fara yfir þær í ráðuneytinu og upplýsa síðan að sjálfsögðu þingheim ef óskað er eftir því.