fjáraukalög 2013.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni sérstaklega fyrir að túlka orð mín hér sem hann skildi á ákveðinn veg. Varðandi það að ég sé óánægður með vinnubrögðin þá hef ég nú sagt, og sagði áðan í viðtali í útvarpinu, að þetta gengi nú allt sinn vanagang. Ekki er þar með sagt að ég sé endilega ánægður og ég held að ég geti fullyrt að allir, hvort sem er í meiri eða minni hluta, séu óánægðir með hvernig vinnan við fjárlagagerðina hefur verið undanfarin ár. Ég held að það sé kannski líka þess vegna sem hæstv. núverandi fjármálaráðherra ætlar að leggja fram nýtt frumvarp um opinber fjármál, þannig að það sé nú allt saman sagt.
Ég vil þó taka fram að þær tillögur sem ég hef séð í fjárlagagerðinni eru um margt ansi góðar. Ég vil sérstaklega taka fram að við ætlum að reyna að draga til baka hluta af þeim skerðingum sem aldraðir og öryrkjar urðu því miður fyrir á síðasta kjörtímabili, bæta í þann málaflokk um 5–6 milljörðum, ég held að allir fagni því. Svo ætlum við að setja um 20 milljarða í að leiðrétta þann forsendubrest sem varð í hruninu í byrjun árs 2008. Þar eru um 20 milljarðar sem renna til skuldugra heimila og ég vona að þingheimur fagni því og styðji þegar það kemur hér inn til þingsins.
Varðandi þjóðmenninguna; ég var kannski ekki búinn að svara því. Það er afar erfitt fyrir mig, sem á ekki sæti í fjárlaganefnd, að setja mig algjörlega inn í hvernig vinnulagið hefur verið. Ég gagnrýndi það varðandi menntamálaráðuneytið og tók undir (Forseti hringir.) með meiri hlutanum en ég tel þó að þjóðmenningin eigi vel heima í forsætisráðuneytinu (Forseti hringir.) og ég vona að vel verði farið með þann málaflokk.