143. löggjafarþing — 34. fundur,  11. des. 2013.

dagskrá fundarins og afgreiðsla mála fyrir jól.

[15:42]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Ég tek undir óskir um dagskrárbreytingu og á ekki von á öðru en að virðulegur forseti verði við því af því að óskin er einlæg. Við viljum greiða leið fyrir þessi tvö frumvörp og við viljum — ég er sannfærð um að allir þingmenn hér inni vilja að þetta verði að lögum fyrir helgi.