fjáraukalög 2013.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Það er gaman þegar við tvær getum verið sammála um hlutina. Menn eru oft einfaldlega að vinna að sama markmiðinu, að reyna að gera hlutina aðeins betur og skila meiru.
Ég hlakka svo sannarlega til þess þegar ástandið í ríkisfjármálunum verður orðið þannig að við verðum búin að borga niður skuldir svo við getum farið að hugsa um hvort við ætlum að byggja upp einhverja sjóði. Kannski er fordæmið þar olíusjóður Norðmanna, ég veit ekki hvort hv. þingmaður var að hugsa um það en þegar við tökum þá umræðu verður það lúxusvandamál. Ég er svo sem ekki tilbúin að lýsa því yfir hvernig við eigum að snúa okkur þá, en ég er svo sannarlega vongóð um að sú umræða verði tekin í þingsalnum, og vonandi sem fyrst.
Ég fagna því sem hv. þingmaður segir um markaða tekjustofna. Það er mikilvægt að við sem erum í þinginu höfum áhuga á að tala um það. Þó að það veki kannski ekki mikla umræðu úti í samfélaginu er mjög mikilvægt að breyta þessu fyrirkomulagi til að við náum betri stjórn á því með hvaða hætti við tökum á rekstri ríkissjóðs.
Millifærslurnar hjá menntamálaráðuneytinu vegna átaksins Nám er vinnandi vegur eru einfaldlega stefnubreyting. Eins og kemur fram í þessu nefndaráliti er þetta ekki eitthvað sem á að vera til staðar í svona vinnu varðandi fjáraukann. Eins og kemur fram í álitinu er það afstaða meiri hlutans að það sé ekki til fyrirmyndar að færa fé til með þessum hætti. Engu að síður hefur þetta áður verið gert og er valið að gera hér. Mikilvægast af öllu er að við tökum þessa löggjöf um utanumhald ríkisfjármála til endurskoðunar. (Forseti hringir.) Ég hlakka svo sannarlega til að taka þátt í þeirri vinnu.