143. löggjafarþing — 40. fundur,  18. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[16:02]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Vinstri hreyfingin – grænt framboð sendi skilaboð sín til heilbrigðisstofnana á síðasta kjörtímabili og sem betur fer kom það fram í umræðunni að í það minnsta einum hv. þingmanni Vinstri grænna finnst að þau skilaboð sem þá voru gefin hafi verið mistök. Það er gott að hv. þingmenn Vinstri grænna hafi skipt um skoðun og áttað sig á mistökunum, en yfirboð eru ekki sannfærandi.