143. löggjafarþing — 40. fundur,  18. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[16:58]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Fyrir hönd þingflokks framsóknarmanna fagna ég tillögu meiri hluta fjárlaganefndar um 30 millj. kr. framlag til rannsókna á samgöngukostum milli Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðar. Þetta framlag færir okkur skrefi nær Seyðisfjarðargöngum.