143. löggjafarþing — 40. fundur,  18. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[17:04]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við fögnum auknum fjárframlögum til heilbrigðismála og styðjum þær tillögur ríkisstjórnarinnar. Ég er sérstaklega ánægð með að FSA skuli fá aukna fjárveitingu. Spítalinn sinnir mjög mikilvægu hlutverki á öllu Norður- og Austurlandi.