143. löggjafarþing — 44. fundur,  20. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[11:54]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Með fjárlagafrumvarpi 2014 er því miður boðuð afturhaldssöm atvinnustefna, byggðastefna sem stuðlar að veikingu landsbyggðar og óljós menntastefna. Fjármunir eru veittir til þeirra sem nóg hafa handa á milli frá þeim sem ekki eru aflögufærir. Þetta er í stuttu máli andi þessara fyrstu fjárlaga ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

Við meðferð frumvarpsins í þinginu og í þingnefndum hafa þó verið gerðar breytingar til batnaðar og mun fjárlaganefnd í heild sinni flytja tillögur sem samkomulag varð um.

Það er ástæða til að staldra við einstaka liði og það mun ég gera hér í fáum orðum.

Virðulegi forseti. Það er gert ráð fyrir tekjum af bankaskatti sem mun verða úthlutað af þeim lið í samræmi við samþykkt lagafrumvörp á árinu 2014. Mörgum spurningum er ósvarað varðandi þetta málefni. Ekki er búið að greina hverjir fá niðurfelldar skuldir samkvæmt tillögu sérfræðingahóps forsætisráðuneytisins.

Það þarf að greina eignastöðu lántaka í íbúðarhúsnæði sem er veðandlag lánsins sem á að greiða niður samanborið við eignastöðu annarra heimila sem fá ekki niðurgreiðslu. Það þarf að greina eignastöðu lántaka í íbúðarhúsnæði og öðrum eignum samanborið við eignastöðu annarra heimila sem fá ekki niðurgreiðslu.

Það þarf að greina hvenær lán sem fá leiðréttingu voru tekin og skipta þeim eftir höfuðborgarsvæði og landsbyggð til að hægt sé að meta í hvaða tilvikum verðbólga hefur verið hærri en hækkun vísitölu húsnæðisverðsins. Auk þess þarf að greina hvenær þau húsnæðislán sem ekki á að leiðrétta vegna aðgerða sem stjórnvöld hafa þegar gripið til voru tekin.

Við alla þessa liði þarf að skoða hver eru áhrifin af því að draga frá fyrri aðgerðir stjórnvalda og hverjir það eru sem fá hámarksniðurgreiðslu.

Skoða þarf áhrifin eftir tekjutíundum heimila, heildarupphæðir og fjölda heimila í hverri tekjutíund.

Greina þarf hver eru áhrif niðurfellinganna á hlutfall húsnæðiskostnaðar af ráðstöfunartekjum, hver fjöldi heimila er sem mun greiða undir 20% af ráðstöfunartekjum sínum í húsnæðiskostnað ef af niðurfellingu verður en greiðir meira en 20% núna.

Hvað kostar að bæta Íbúðalánasjóði tap vegna hraðari uppgreiðslu lána?

Hvert er áætlað tap Landsbankans vegna hraðari uppgreiðslu lána?

Þörf er á nákvæmari greiningu á áhrifum niðurfellingarinnar á verðbólgu og aðrar hagstærðir en var birt með skýrslu sérfræðingahópsins.

Seðlabankinn hefur sagt að verðbólguáhrif gætu verið vanmetin sem og áhrif á einkaneyslu og viðskiptajöfnuð. Allt eru þetta þættir sem gætu torveldað afnám gjaldeyrishafta.

Þörf er á að meta hvaða aðrar aðgerðir ríkið gæti farið í fyrir sambærileg útgjöld og meta hver áhrif þeirra væru á helstu hagstærðir.

Greina þarf hvernig koma á til móts við leigjendur þannig að þyngri greiðslubyrði vegna verðtryggðrar leigu verði bætt.

Námslán þarf að meðhöndla eins og önnur verðtryggð lán.

Aðrar aðgerðir sem mætti skoða væri niðurgreiðsla á skuldum ríkissjóðs, skattalækkanir sem næðu til almennings, aðgerðir sem auðvelduðu afnám gjaldeyrishafta og uppbyggingu innviða samfélagsins, t.d. þeirra sem eru líklegir til að skapa aukna atvinnu og gjaldeyristekjur.

Það sem ég hef nú farið yfir og þær spurningar sem ég hef nefnt að þurfi að svara eru engan veginn tæmandi, en þær gefa til kynna hversu mörgum spurningum er enn ósvarað varðandi áform stjórnvalda um skuldaniðurfellingar.

Virðulegi forseti. Formenn stjórnmálaflokkanna gerðu með sér samkomulag um þinglok fyrir jól. Í því samkomulagi fólust tillögur sem hafa bæði áhrif á tekjur og gjöld á árinu 2014.

Í fyrsta lagi mun samráðsnefnd um veiðigjöld, sem Alþingi kýs samkvæmt gildandi lögum, fjalla um möguleika á álagningu á nýjar fisktegundir í íslenskri lögsögu, með það að markmiði að unnt verði að leggja slíkt gjald á á árinu 2014. Þessi tillaga skiptir miklu máli og 1. minni hluti vonar að vinna nefndarinnar leiði til útboðs á kvóta til leigu sem gefi tekjur í ríkissjóð sem munar um.

Gjöld sem leggja átti á sjúklinga sem þurfa að leggjast inn á sjúkrahús er dregin til baka. Um er að ræða 290 millj. kr. og verða lagaheimildir til gjaldtökunnar felldar út við 3. umr. um bandorm sem fjallar um tekjuhluta frumvarpsins. Við vorum að gera það hér fyrr í dag. Fyrsti minni hluti fagnar þeirri tillögu sérstaklega enda fráleitt að taka gjald af okkar veikasta fólki til reksturs sjúkrahúsanna.

Fjórar tillögur um eflingu nýsköpunar og skapandi greina eru gerðar. Hönnunarsjóður og myndlistarsjóður fá hvor um sig 25 millj. kr. en í fjárlagafrumvarpinu voru framlög til þeirra engin. Tillögurnar eru því til bóta þó að ljóst sé að sjóðirnir muni ekki geta styrkt mörg verðug verkefni á árinu 2014.

Gerð er tillaga um að Rannsóknasjóður fái 50 millj. kr. viðbótarframlag sem er einnig til bóta þó að ekki náist sú upphæð sem stefnt var að. Þá skiptir miklu máli fyrir nýsköpunarverkefni fyrirtækja að fallið verði frá þaki á endurgreiðslur vegna þeirra, eins og tillaga er gerð um.

Verkefni Byggðastofnunar um brothættar byggðir fær 50 millj. kr. framlag og getur því haldið áfram á árinu 2014. Byggðastofnun hefur á árinu 2013 unnið með íbúum Raufarhafnar, Bíldudals, Skaftárhrepps og Breiðdalshrepps. Í þessari nýstárlegu nálgun stofnunarinnar felast sértækar aðgerðir og vinna með íbúum þar sem hin almennu stuðningsúrræði á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og byggðaaðgerða duga ekki ein til. Verkefnið verður ekki skorið niður eins og til stóð og það er vel.

Þá var samið um að þverpólitísk vinna um stefnumörkun á grundvelli þingsályktunar um fæðingarorlof fari af stað. Ekki er gert ráð fyrir að sú vinna leiði til útgjalda á árinu 2014 en 1. minni hluti fagnar því að þverpólitísk stefnumótunarvinna eigi sér stað um fæðingarorlof og um hvernig brúa megi bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla.

Gert er ráð fyrir 700 millj. kr. tekjum af losunarheimildum samkvæmt EES-samningnum. Gert er ráð fyrir að heimildir ársins 2013 og 2014 verði boðnar upp og samtals gefi þetta 700 millj. kr. í tekjur. Hins vegar er samkvæmt lögum nr. 70/2012 gert ráð fyrir að helmingur teknanna renni til umhverfismála, það er ekki gert ráð fyrir þeim útgjaldalið í breytingartillögum meiri hluta fjárlaganefndar við fjárlagafrumvarp 2014 og ljóst að skilaboðin sem gefin eru eru að breyta eigi lögunum um loftslagsmál sem leiði til þess að helmingur teknanna rennur þá ekki til umhverfismála. Engin fagleg umræða hefur farið fram til að undirbyggja þessa ákvörðun og þessu mótmælir 1. minni hluti harðlega.

Í nefndaráliti við 2. umr. benti 1. minni hluti á að atvinnuleysi hefur minnkað umtalsvert frá hruni og stendur núna í rúmum 4%. Það er þó óásættanlega hátt hlutfall sem þýðir að enn eru um 7.000 einstaklingar án atvinnu. Há niðurskurðarkrafa var gerð á Vinnumálastofnun, svo há að talið var að hún mundi ekki geta gegnt hlutverki sínu hvað varðar ráðgjöf til atvinnuleitenda og miðlun atvinnu. Það væri alvarlegt mál og mikilvægt að á milli umræðna verði starfsskilyrði stofnunarinnar bætt þannig að hún get uppfyllt sitt lögbundna hlutverk. Fjárlaganefndin öll leggur til að niðurskurður á Vinnumálastofnun verði dreginn til baka og því fagnar 1. minni hluti.

Meiri hluti fjárlaganefndar lagði til 5% niðurskurð að jafnaði á öll ráðuneytin. Fyrsti minni hluti bað um skrifleg svör við eftirfarandi spurningum eftir að beiðni um gesti til nefndarinnar hafði verið hafnað.

Spurningarnar eru þessar:

1. Á hvaða sviðum mun stjórnsýslan veikjast vegna aðgerða sem gripið verður til?

2. Hvað fækkar um mörg störf vegna þessa?

3. Hve mörgum nýjum nefndum og hópum er gert ráð fyrir í fjárlögunum sem starfa að málefnum ráðuneytisins?

Ráðuneytin svöruðu nánast öll með samræmdum hætti að ekki væri mögulegt að leggja endanlegt mat á hver áhrif aðhaldskröfunnar yrðu en augljóst væri að svo mikið aðhald til viðbótar niðurskurði undanfarinna ára hlyti að hafa umtalsverð áhrif á rekstur ráðuneytanna. Einnig kemur fram í svörum ráðuneytanna að þau muni grípa til samræmdra ráðstafana eins og kostur er varðandi ýmis stoðkerfi sem samræma megi en óhjákvæmilegt væri að segja upp starfsfólki í einhverjum mæli.

Samfara niðurskurði í stjórnsýslunni undanfarin ár hefur verið gripið til ráðstafana til að fækka ráðuneytum og styrkja starfseiningar. Fyrsti minni hluti varar við frekari niðurskurði í stjórnsýslunni og gagnrýnir hversu seint 5% viðbótarniðurskurðarkrafa kom og telur að ef lengra verður haldið muni stjórnsýslan veikjast þannig að skaði geti hlotist af.

Virðulegi forseti. Í nefndaráliti 1. minni hluta við 2. umr. fjárlaga var sagt frá því að vinna fjárlaganefndar við afgreiðslu mála fyrir 2. umr. fjárlagafrumvarpsins hefði einkennst af flýti og örum breytingum á tillögum og skjölum. Það vinnulag var gagnrýnt og varað við því að vegna þess geti mistök átt sér stað sem geti kallað á vandamál á árinu 2014 í rekstri stofnana. Vinna fjárlaganefndar fyrir 3. umr. hefur ekki verið skárri. Öllum óskum 1. minni hluta um gestakomur fyrir nefndina var hafnað. Fundirnir voru stuttir og þeir voru ómarkvissir. Tillögur vegna áhrifa af ráðstöfunum til niðurfærslu á verðtryggðum fasteignalánum upp á 23 milljarða kr. voru ræddar og afgreiddar á innan við klukkustund samtals á tveimur fundum sama daginn.

Fyrsti minni hluti gagnrýnir harðlega vinnubrögðin í nefndinni bæði við fjáraukalagafrumvarpið og fjárlagafrumvarp 2014.