143. löggjafarþing — 48. fundur,  21. des. 2013.

þingfrestun.

[18:19]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 143. löggjafarþings, frá 20. desember 2013 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 14. janúar 2014.

Gjört á Bessastöðum, 19. desember 2013.

Ólafur Ragnar Grímsson.

___________________________

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Bréf forseta Íslands um frestun á fundum Alþingis.“

 

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 143. löggjafarþings, er frestað.

Ég þakka hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins fyrir störf sín og óska þeim, svo og landsmönnum öllum, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.