143. löggjafarþing — 55. fundur,  23. jan. 2014.

viðvera íslenskra ráðherra á vetrarólympíuleikunum.

[11:08]
Horfa

Róbert Marshall (Bf):

Virðulegur forseti. Af því tilefni að mér virðist forseti vera mjög umburðarlyndur gagnvart því sem getur flokkast sem umræðuefni undir liðnum um fundarstjórn forseta langar mig að segja um þetta efni að sé sú ákvörðun tekin af íslenskum stjórnvöldum að sækja slíkan atburð eiga þau auðvitað ekki að bíða eftir tækifæri til þess að geta hrópað eitthvað úr skíðabrekkum þar ytra heldur búa sér til tækifæri og skapa vettvang til þess að koma skoðunum samfélags okkar til skila.