143. löggjafarþing — 55. fundur,  23. jan. 2014.

fríverslunarsamningur Íslands og Kína.

73. mál
[13:57]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Birgir Ármannsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að ekki sé rétt að tengja þau tvö tilteknu mál saman eins og hv. þingmaður gerir. Ég held að við verðum að afgreiða hvort um sig út frá þeim rökum sem standa til þess að samþykkja þau eða leggjast gegn þeim. Þess vegna geri ég það að minnsta kosti ekki að tillögu minni að atkvæðagreiðsla í þessu máli verði geymd þangað til afgreiðslu Tíbetsmálsins er lokið.