143. löggjafarþing — 61. fundur,  11. feb. 2014.

störf þingsins.

[13:47]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Samtökin Regnbogabörn hafa verið lögð niður. Það hefur ekki farið fram hjá okkur. Það hefur verið greint frá því í flestum miðlum undanfarna daga. Ástæðan er hefðbundin: Peningaskortur og enginn opinber stuðningur.

Viðbrögðin eru sterk. Fólk tjáir sig meðal annars á fésbókarsíðu samtakanna og finnst fréttirnar hræðilegar og sorglegar. Viðbrögðin eru kannski ekki víðtæk en þau eru sterk. Einstaklingar þakka samtökunum bætt líf, hjálp við að komast út úr sálrænni áþján þunglyndis og hryllilegum afleiðingum eineltis.

Um er að ræða dæmi um góðgerðarsamtök sem vinna að því að bæta samfélag okkar, fjöldasamtök um átak gegn einelti stofnuð af einstaklingum með hugsjón. Regnbogabörn hafa starfað í 12 ár. Þau hafa snert líf 20 þúsund einstaklinga á þeim tíma, átt ríkan þátt í að opna augu okkar og verið áberandi vettvangur í þjóðarátaki gegn þessu manneskjumeini.

Ég skynja vel að viðbragðsáætlanir í skólakerfinu síðasta áratuginn hafa batnað, það hefur eitthvað áunnist, ég hef engan mælikvarða á það. Ég stend ekki hérna með ákall um peninga til handa einhverjum samtökum sem hafa verið lögð niður. Nei. Okkar ábyrgð er fyrst og fremst sú að spyrja hvort hér myndist skarð sem ekki verður fyllt.