143. löggjafarþing — 64. fundur,  18. feb. 2014.

skattafsláttur vegna kostnaðar við ferðir til og frá vinnu.

300. mál
[15:13]
Horfa

Flm. (Elsa Lára Arnardóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um skattafslátt vegna kostnaðar við ferðir til og frá vinnu.

Þingsályktunartillagan fjallar um að fela fjármála- og efnahagsráðherra að undirbúa og leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingar á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum, sem feli í sér heimildir ráðherra til að útfæra og setja reglur um að þeim skattskyldu mönnum sem greiða þurfa háan kostnað vegna ferða til og frá vinnu innan tiltekinna og skilgreindra atvinnusvæða innan lands verði veittur afsláttur af tekjuskatti. Í framhaldinu útfæri ráðherra og setji slíkar reglur.

Nokkrir hv. þingmenn Framsóknarflokksins eru flutningsmenn þessarar tillögu, en það eru sú sem hér stendur, Elsa Lára Arnardóttir, Jóhanna María Sigmundsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Höskuldur Þórhallsson og Silja Dögg Gunnarsdóttir.

Herra forseti. Í greinargerð með þingsályktunartillögunni kemur fram að tillaga sama efnis hafi verið lögð fram áður á 140. löggjafarþingi, það var mál nr. 639, og á 141. löggjafarþingi sem mál nr. 105.

Einnig kemur fram í greinargerð að síðustu ár og áratugi hafi þéttbýliskjarnar stækkað auk þess sem samgöngur hafi víða batnað. Samhliða því hafa miklar breytingar orðið á þróun byggða- og atvinnusvæða. Fólk, jafnt í skilgreindu þéttbýli sem í dreifbýli, hefur í síauknum mæli leitað í störf í nágrannabæjar- og sveitarfélögum þannig að skilgreiningar og hugmyndir um atvinnusvæði hafa verið að breytast.

Sú þróun hefur leitt af sér sífellt stækkandi atvinnusvæði og lengri akstur og ferðir vegna vinnu. Þróunin er jákvæð og styrkir byggðir landsins en stækkandi atvinnusvæðum og ferðum fólks langar leiðir í og úr vinnu fylgja einnig vandamál, m.a. hár eldsneytiskostnaður því að eldsneytisverð á Íslandi hefur sjaldan verið jafn hátt. Nauðsynlegt er að unnið sé að því að auka vægi almenningssamgangna á hverju atvinnusvæði fyrir sig en þar er víða pottur brotinn. Það er ljóst að á sumum atvinnusvæðum er engum almenningssamgöngum til að dreifa og yfir langan veg að fara til og frá vinnu. Það er því tillaga flutningsmanna að ráðherra verði falið að undirbúa og leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á tekjuskattslögum sem feli í sér heimild ráðherra til að setja reglur um að þeim skattskyldu mönnum sem greiða þurfa háan kostnað vegna ferða til og frá vinnu innan tiltekinna og skilgreindra atvinnusvæða verði veittur afsláttur af tekjuskatti. Fái frumvarpið lagagildi útfæri ráðherrann og setji slíkar reglur. Þessi leið er vel þekkt í þeim löndum sem við berum okkur saman við og hér á eftir ætla ég að rekja dæmi um útfærslu á ívilnunarkerfum í Danmörku, Svíþjóð og Noregi.

Í Danmörku geta launþegar fengið sérstakan skattafslátt ef ákveðin skilyrði eru til staðar. Reglurnar eru þær að ef vinnustaður launþegar er í meira en 12 km fjarlægð frá heimili, sem sagt ef eknir eru meira en 24 km til og frá vinnu á hverjum vinnudegi, á hann rétt á skattafslætti vegna aksturs í og úr vinnu. Launþegar á jaðarsvæðum fá 2,1 dkr. í skattafslátt fyrir hvern kílómetra sem ekið er umfram 24 km á hverjum vinnudegi. Taxtinn er sá sami fyrir hvern kílómetra umfram 120 km. Á heimasíðu ríkisskattstjóra í Danmörku má sjá hvaða svæði eru skilgreind sem jaðarsvæði, en mörg þeirra eru í útjaðri Danmerkur. Jaðarsvæðin eru skilgreind út frá ákveðnum þáttum, t.d. lágum tekjum, þar sem tekjur á hvern íbúa fara ekki yfir 90% af landsmeðaltali, en einnig er litið á íbúaþróun við mat á jaðarsvæðum.

Ef við tökum Svíþjóð sem dæmi er þar veittur skattafsláttur samkvæmt eftirfarandi skilyrðum: Minnst 5 km þurfa að vera á milli heimilis og vinnustaðar. Launþegi þarf að spara samanlagt tvær klukkustundir í ferðatíma við að nota bíl fremur en að nota opinber samgöngutæki eins og til dæmis strætisvagn. Ef farið er á bíl minnst 60 daga á ári og 300 mílur eknar í tengslum við starfið er einungis veittur afsláttur fyrir þá daga sem ekið er í tengslum við starfið. Ef ekið er minnst 160 daga á ári og minnst 300 mílur í tengslum við starf er afslátturinn veittur fyrir fjölda daga sem ekið hefur verið í og úr vinnu. Skattafsláttur er einungis veittur fyrir útgjöld umfram 10.000 skr. Ef almenningssamgöngur eru ekki mögulegar í minnst 2 km á leiðinni milli heimilis og vinnu er veittur skattafsláttur fyrir alla leiðina í bíl. Taxtinn er 18,50 skr. fyrir hverja mílu sem ekin er. Í slíkum tilvikum er skattafslátturinn einungis gefinn fyrir upphæð umfram 10.000 skr.

Ég ætla að ljúka þessum samanburði á því að að ræða um Noreg. Í Noregi er svipað fyrirkomulag og í Danmörku og Svíþjóð þegar kemur að skattafslætti vegna aksturs í og úr vinnu. Greitt er fyrir unna vinnudaga, en veikindadagar og annað slíkt kemur til frádráttar. Taxtinn fyrir árið 2011 var 0,7 nkr. fyrir hvern kílómetra að frádregnum neðri mörkum sem eru 13.950 nkr., sem var að vísu taxti fyrir árið 2012.

Launþegar búsettir í Noregi sem sækja vinnu í öðru landi eiga rétt á afslætti vegna aukaútgjalda, þ.e. vegna matar, húsnæðis og heimsóknarferða. Lögheimili þarf að vera skráð í Noregi og launþegi greiðir skatt til viðkomandi sveitar- eða bæjarfélags. Einnig þarf hann að þiggja laun samkvæmt launasamningi. Gerðar eru kröfur um fjölda ferða milli vinnustaðar og heimilis. Kröfurnar eru ólíkar eftir því hvort viðkomandi er einstaklingur eða fjölskyldumaður.

Ég legg til að málinu verði vísað til efnahags- og viðskiptanefndar að umræðu lokinni.