143. löggjafarþing — 65. fundur,  19. feb. 2014.

varamaður tekur þingsæti.

[15:02]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá 7. þm. Suðurk., Ásmundi Friðrikssyni, um að hann geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Geir Jón Þórisson.

Kjörbréf Geirs Jóns hefur þegar verið rannsakað og samþykkt, en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Geir Jón Þórisson, 7. þm. Suðurk., undirskrifaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]