143. löggjafarþing — 67. fundur,  24. feb. 2014.

ráðgjafarhópur um afnám gjaldeyrishafta.

[16:48]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Fulltrúar í ráðgjafarhópnum hafa verið skipaðir formlega, já, það var gert með formlegum hætti.

Hvað varðar hins vegar pólitíska samráðshópinn hefur hann þegar fundað og mun funda áfram og ég hvet fulltrúa flokkanna í þeim hópi til þess að mæta vel á þá fundi, öðruvísi vita menn ekki hvað er að gerast.