143. löggjafarþing — 67. fundur, 24. feb. 2014.
aðildarviðræður við Evrópusambandið.
320. mál
Virðulegur forseti. Í ljósi þessarar umræðu lét ég þess getið þann dag, á miðvikudagsmorgni þegar Morgunblaðið kom út, að mér hefði brugðið við að sjá umræðu um skýrsluna á forsíðu Morgunblaðsins. Ég get hins vegar upplýst það hér sem þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins að á milli kl. 10 og 11 fengum við þessa skýrslu senda rafrænt í tölvupósti.
Ég get jafnframt fullyrt það hér og nú að sú skýrsla fór ekki úr minni tölvu til Morgunblaðsins eða Vigdísar Hauksdóttur.