143. löggjafarþing — 67. fundur,  24. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[23:24]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það er kannski ágætt að það komi fram að á fundi þingflokksformanna var rætt að það væri sennilega vitað að við mundum ljúka þessum fundi ekki síðar en hálftólf. Ég vænti þess að sá forseti sem nú skipar stólinn sé sama sinnis og muni slíta fundi fyrr en síðar.