143. löggjafarþing — 67. fundur,  24. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[23:26]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég vil eins og hv. þm. Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, minna á þá umræðu sem varð á þingflokksformannafundi fyrr í kvöld um það sem forseti orðaði einhvern veginn þannig að þegar klukkan væri farin að halla í hálftólf yrði fundi slitið. Ég vænti þess að sá forseti sem situr í stólnum núna sé sama sinni.