143. löggjafarþing — 69. fundur,  26. feb. 2014.

lengd þingfundar.

[16:31]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Ég tek undir með öðrum þingflokksformönnum sem hér hafa tjáð sig, það undrar mig að það eigi að koma á kvöldfundi. Það er alveg ljóst að ef á að koma því máli á dagskrá sem hér hefur mikið verið rætt um og er þó ekki komið enn til umræðu þá þarf fundurinn að standa lengi í nótt.

Gott og vel. Þá vil ég enn og aftur skora á þá þingmenn sem greiða munu atkvæði með þessari tillögu að gera svo vel og vera í þingsal fram eftir nóttu.