143. löggjafarþing — 69. fundur, 26. feb. 2014.
um fundarstjórn.
Eðli máls samkvæmt, þar sem gert er ráð fyrir því að skýrslan fari til nefndar, verður umræðunni einfaldlega frestað eins og hefur verið gert og hv. þingmenn þekkja dæmi um, til að mynda í vetur. Síðan er það á valdi nefndarinnar að taka ákvörðun um framhaldið en auðvitað geta einstakir hv. nefndarmenn eða minni hluti skilað nefndaráliti, eins og við þekkjum.