143. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[01:20]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Svarið við þessu er að það hefur vakað fyrir forseta að komast sem lengst í þessari umræðu um skýrsluna. Ef verið er að leggja til að hægt sé að ljúka umræðunni um hana tiltölulega fljótlega mun það ekki vera vandamál af hálfu forseta.

Það er ekki áform forseta að taka nýtt mál á dagskrá síðar í nótt.