aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Það er auðvitað þannig að ekkert okkar sem tökum þátt í þessari umræðu erum að verða yngri, þvert á móti. (Gripið fram í: Jú, ég.) Hv. þingmenn eru að verða árinu eldri en þeir voru þegar þeir komu til þessa fundar og mér sýnist á mörgum þingmönnum hér, sérstaklega hv. þm. Frosta Sigurjónssyni, þingmanni Framsóknarflokksins, sem er búinn að halda um höfuð sér býsna lengi, að menn séu farnir að lýjast svolítið. Kannski er það bara misskilningur, hann er auðvitað niðursokkinn, maðurinn, í vinnu. En það væri hins vegar gott að fá einhver svör við því hvaða áætlanir forseti hefur um þennan fund og hvort það sé virkilega þannig að hann óski þess að menn fari að flytja sína fyrstu ræðu hér svona seint um nótt þó að það finnist að sjálfsögðu enginn bilbugur á hæstv. forseta.