143. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2014.

um fundarstjórn.

[11:46]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti hefur reynt eins og hann hefur haft vit og þekkingu til að reyna að miðla hér málum, en það er ljóst mál að til þess að það geti tekist og borið árangur þurfa menn að ná saman. Það hefur hins vegar ekki tekist fram að þessu. Forseti þekkir ekki aðrar leiðir til en þær að reyna að halda áfram þessu verkefni með þeim hætti sem hann hefur verið að gera m.a. með fundum og eiga formleg og óformleg samtöl við hv. þingmenn og hæstv. ráðherra.