143. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2014.

tilhögun þingfundar.

[15:14]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir það samkomulag sem náðst hefur milli formanna flokka og á þingflokksformannafundi. Ég tel afar mikilvægt að það sé ljóst að þetta samkomulag hefur tekist og hæstv. forseti þingsins, Einar Kristinn Guðfinnsson, á heiður skilinn fyrir að hafa náð þessu samkomulagi.

Þetta vildi ég sagt hafa, virðulegur forseti, ég hef ekkert út á fundarstjórn forseta að setja.