143. löggjafarþing — 71. fundur, 10. mars 2014.
beiðni um hlé á þingfundi.
Forseti gerir ráð fyrir því að klukkan 17.15, korter yfir fimm, verði gert hlé á þessum fundi til þess að rýma fyrir þingflokksfundi og sömuleiðis til þess að koma á fundi flokksformanna, enda gerir forseti þá ráð fyrir því að efnisleg umræða um málið geti hafist nú þegar í samræmi við þá dagskrá sem hér liggur fyrir.