143. löggjafarþing — 71. fundur,  10. mars 2014.

beiðni um hlé á þingfundi.

[16:58]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti mundi að sjálfsögðu sjá til þess að hæstv. utanríkisráðherra yrði viðstaddur hér þegar hin efnislega umræða hefst, en það er ekki það sem hefur gert að verkum að sú umræða hefur ekki hafist, að hæstv. utanríkisráðherra hafi ekki verið til staðar í húsinu, það eru aðrir hlutir sem hafa valdið því eins og allir hv. þingmenn vita.